top of page
Search

Markaðs­starf eftir Co­vid19

Stjórnvöld hafa heitið því að láta 1500 milljónir króna í að styrkja markaðsstarf ferðaþjónustunnar þegar sóttinni slotar og aftur verði hægt að vænta þess að einhver vilji yfir höfuð ferðast. Með fororði um að setja meira í markaðsstarfið ef þarf. Það er vel, en hafa má hugfast að síðan sóttinn kom upp hefur íslenski sjávarútvegurinn rekið sitt eigi markaðsátak og keppst við, nótt sem nýtan dag, við að selja íslenskar sjávarafurðir erlendis. Stjórnvöld hafa ekki látið krónu af hendi rakna í það starf og eru þó framundan páskarnir sem löngum hafa verið gríðarlega mikilvægir fyrir sjávarútveginn. Miklu skiptir að hægt sé að tryggja neytendum vörur á þeim tíma þó lokanir gildi nú í flestum viðskiptalöndum okkar. Neytendur þekkja íslenska fiskinn að góðu einu og vilja sjálfsagt fá hann sem áður.

Ég heyri það frá aðilum í sjávarútvegi að þeir óttast stöðu viðskiptavina sinna. Dæmi eru um að viðskiptvinir þeirra hafi farið fram á gjaldþrotaskipti og að kröfur séu líklega tapaðar. Sjávarútvegsfyrirtæki hafa umbylt sinni framleiðslu vegna ástandsin á mörkuðum og vegna sóttvarnartilmæla viðskiptalanda. Mikið fer í frystingu og afurðir eru nú unnar til geymslu með von um betri tíð. Ástæða er til að óttast að markaðsfyrirtæki lendi í vanda og að íslenskir fiskseljendur þurfi að finna nýjar leiðir og nýja dreifingaraðila. Það ekki einfalt að selja og flytja fisk þessa daganna, í raun hefur allt breyst. Samt hefur tekist með undraverðum hætti að halda stórum hluta sjávarútvegsins gangandi enn sem komið er þó vissulega hafi hægst á sölu og veiðum. Tekist hefur að tryggja sölu á einhverju af ferskum fiski inn á markaði í Bretlandi, Belgíu, Frakklandi og Bandaríkjunum en þar hafa ekki allar leiðir lokast. Hefð er fyrir mikilli fiskneyslu víða, til dæmis í Evrópu, í aðdraganda páska og hafa smærri og stærri fyrirtæki átt viðskipti á fiskmörkuðunum til að afla sér hráefnis. En um leið hefur flutningsverð hækkað sem lækkar vitaskuld framlegð vinnslunnar.

Fagnaðarefni er að fiskmagnið jókst í marsmánuði á fiskmörkuðum frá því sem var síðasta ár. Sömuleiðis hefur verð haldið sér þokkalega þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í sölu afurða eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins um síðustu helgi.

En varðandi það markaðsstarf sem getið var hér í upphafi, þá má hafa í huga að vel væri hægt að hafa samstarf um fyrirhugað markaðsstarf vegna ferðaþjónustunnar með sjávarútvegi og þess góða starfs sem þar er unnið. Við getum bent á hreinleika og gæði fisksins, svo og þá sjálfbærni sem felst í íslenskri fiskveiðistjórnun. Bendum ekki bara á fjöllin og fossana, segjum líka frá fólkinu við fjörðinn.

Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Bláa Hagkerfisins.

5 views0 comments

Recent Posts

See All

Dauðaslys á sjó í Noregi og á Íslandi

Fimm sinnum líklegra að sjómaður farist við störf í Noregi en á Íslandi Árið 2008 er merkilegt í sögu Íslands því það er fyrsta árið þar sem enginn sjómaður lést við störf til sjós hér við land. Að su

bottom of page