top of page
Search

Ólöglegar veiðar ógna vistkerfum Evrópu

Nýleg rannsókn leiðir í ljós alvarlegar brotalamir í fiskveiðistjórnun á vernduðum hafsvæðum innan Evrópu, sem ógna sjálfbærni fiskistofna og viðkvæmum vistkerfum.


Greining á gervihnattagögnum frá evrópskum fiskiskipaflotum sýnir að yfir 400 tilfelli ólöglegra veiða hafa átt sér stað á vernduðum svæðum. Þessi atvik spanna allt frá veiðum með botnvörpu á meira en 800 metra dýpi til fiskveiða innan svæða sem sérstaklega eru lokuð til verndar viðkvæmum hafsvæðum. Þetta undirstrikar alvarlega veikleika í eftirliti og framfylgd reglugerða innan Evrópusambandsins.

Áhrif þessara brota eru víðtæk. Ekki aðeins eru vistkerfi hafsins í hættu, heldur grafa ólöglegar veiðar undan lífsviðurværi sjómanna sem fylgja reglum, skerða trúverðugleika verndaraðgerða og draga úr möguleikum á sjálfbærri nýtingu fiskistofna.


Gera þarf betur – hvað segir vandinn um stjórnun ESB?

Þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi sett á laggirnar umfangsmiklar reglur og stofnanir til að fylgjast með fiskveiðum, svo sem Fiskveiðieftirlitsstofnun ESB, hefur ekki tekist að koma í veg fyrir brot af þessari stærðargráðu. Staðreyndirnar tala sínu máli: fjöldi fiskistofna innan ESB er enn ofveiddur, og aðeins lítil hluti svæða nýtur raunverulegrar verndar.

Veikleikar kerfisins birtast meðal annars í ófullnægjandi samræmingu eftirlitsaðgerða milli aðildarríkja og ósamleitni í notkun tækni, svo sem gervihnattagagna. Til samanburðar má benda á að Ísland, sem byggir sitt fiskveiðistjórnunarkerfi á vísindalegum grunni og nýsköpun, hefur náð betri árangri í verndun auðlinda og eftirliti með nýtingu þeirra.

Þessi staða undirstrikar fásinnuna sem felst í hugmyndum um að Ísland gangi í Evrópusambandið og afsali sér stjórn á sínum eigin auðlindum til sambands sem hefur ekki sýnt fram á að það geti sinnt viðlíka stjórnun og Ísland. Íslendingar hafa byggt upp eitt besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi með vísindalegri nálgun og öflugri nýtingu tækninnar. Það væri fráleitt að láta þá stjórna íslenskum hafsvæðum þegar þeir ættu frekar að taka Ísland sér til fyrirmyndar.


 
 
 

Recent Posts

See All
CATCH – Greind veiðistýring

Yfirlit CATCH er greind veiðistýring fyrir útgerð sem tengir saman rauntímagögn, veðurlíkön og söguleg veiðigögn til að hámarka nýtingu, draga úr leitartíma og styðja sjálfbæra, gagnadrifna ákvarðanat

 
 
 
Tvær þjóðir við sjóinn, en tvær ólíkar sögur

“Við sýnum ekki nógu mikið af þeirri merku sjósögu sem hefur mótað þjóðina – kominn er tími til að breyta því.” Í september síðastliðnum hjólaði ég suður með vesturströnd Portúgals frá Porto til Lissa

 
 
 

Comments


+354 8935055

  • facebook
  • twitter

©2020 by Bláa Hagkerfið. 

bottom of page